Blæti & Bindingar

Blæti & Bindingar

 

Welcome Guest

Username:

Password:


Remember me

[ ]
[ ]

GayPride

gaypride.gif
logo-bogb-reflect.png
Velkomin/nn á Blæti & Bindingar
 
Þessi síða inniheldur efni aðeins ætlað fólki sem er orðið 18 ára eða eldra og hefur áhuga á blætum (fetish) og bindingum (bondage) og öðruvísi lífsstíl.

Vinsamlegast virðið aldurstakmörkin.

ATHUGIÐ AÐ NETFÖNG FRÁ EFTIRFARANDI LÉNUM ERU EKKI LEYFÐ HÉR:
@homail.com
@visir.is
@tal.is / @hive.is /@vodafone.is /@heimsnet.is

Ofangreind netföng fá ekki inn staðfestingarpóst og því mælum við eindregið með Gmail eða tölvupóstföngum.

Ýtið á Gmail myndina til að skrá ykkur þar.

gmail-black.gif

Þú getur svo NÝSKRÁÐ ÞIG MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR.
Athugið að vefstjórnendur samþykkja notendur hér inn, þannig að það geta liðið 5. mínútur upp í 12. klukkutíma að vera samþykkt/ur hingað inn.

‾‾‾‾‾‾‾‾‾‾‾‾‾‾‾‾‾‾‾‾‾‾‾‾‾‾‾‾‾‾‾‾‾‾‾‾‾‾‾‾‾

Kæri gestur.

Vefur þessi er netsamfélag þeirra sem hafa áhuga á eða stunda óhefðbundin lífsstíl eða óhefðbundið kynlíf.
Áherslan hér er ekki vilhöll á einn eða annan hóp, heldur eru hér samankomnir allir hópar.

Meðal hópa sem eru hér má nefna fólk sem hefur áhuga á:
Blætum (fetish), bindingum (bondage), Drottnun (Domination), þrældóm/undirgefni (slave/submissive), sadisma (sadist), masókisma (masokist), skiptir (switch), klæðskipti (cross dressing), polyamory (fjölsamböndum), búningum (uniforms), samkynhneigð (gay/lesbian), tvíkynhneigð (bisexuality), cuckold, swingers og svo mætti lengi telja.

Stærsti hópurinn er fólk sem hefur blætishneigð, en BDSM hópurinn fylgir þar í kjölfarið ásamt öðrum hópum.

Þessi vefur var settur á fót 28. maí 2005 og hefur síðan þá tekið þátt í senutengdum viðburðum og málefnum. Helst ber að nefna Freakout sem er eins konar árshátið og uppskeruhátið allra hópa og félaga.
Ennfremur hefur B&B komið að öðrum senutengdum viðburðum, þó þeir hafi verið minni í umgjörð en Freakout.

Blæti & Bindingar er óhlutdrægur samfélagsvefur ofangreindra hópa ásamt því að vera samfélag annarra minni hópa.
Stjórnendur vefjarins eru skipaðir fólki úr röðum þessara hópa og félaga, fólks sem hefur sýnt af sér mikla óeigingirni í störfum í þágu ofangreindra hópa. Ennfremur eru reynslumiklir einstaklingar sem um áratugi hafa lifað í einhverjum af þeim lífstílum í stjórn vefsamfélagsins.


Blæti & Bindingar taka ekki afstöðu með einum hóp eða einstakling umfram annan innan senunnar. Hins vegar styður Blæti & Bindingar við bakið á þeim hópum sem eru innan vefsamfélagsins í réttindabaráttu í þjóðfélaginu.

Hér eru að sjálfsögðu allir velkomnir sem stunda óhefðbundin lífsstíl eins og nefnt er að ofanverðu. Aldurstakmarkið hér inn er 18. ára. Reglur félags í senunni (hjá félögum og hópum) gilda hér ásamt umgengnisreglum sem tilteknar eru á sérstakri síðu þar um.

Fyrir þá aðila sem vilja gerast þáttakendur í þessu vefsamfélagi, en vilja viðhalda nafnleynd sinni, bendum við fólki á að fá sér frítt Gmail tölvupóstfang, kjósi það að nota ekki sitt eigið tölvupóstfang. Allir sem skrá sig verða að gera það með virku tölvupóstfangi og er athugað með slíkt við skráningu. Hotmail tölvupóstur er ekki leyfður hér, þar sem að staðfesting á skráningu nær ekki að berast á þau tölvupóstföng sem nota @hotmail.com.


En að öllu þessu sögðu, bjóðum við ykkur hjartanlega velkomin(n) hingað og vonum svo sannarlega að þið njótið vel.

Blæti & Bindingar / Fetishiceland.com

‾‾‾‾‾‾‾‾‾‾‾‾‾‾‾‾‾‾‾‾‾‾‾‾‾‾‾‾‾‾‾‾‾‾‾‾‾‾‾‾‾
Welcome guest.

FetishIceland (fetishiceland.com) is an online society for people who are living in alternetive lifestyle.
This online society includes many groups, such as people who have fetish, live in bdsm lifestyle, polyamory, cross dressing and etc.

This website is based on icelandic language, but we have included english on some parts of it.

This website has been up since 28. may 2005 and is the largest scene community in Iceland.

There is an english section here, where you can find related information in english.

If you have any question, you may also e-mail us at our e-mail address: fetishiceland( at ) fetishiceland.com

  Nýskráningar !!!

thumb_iceland.jpgKæri gestur.

Ef þú ætlar að nýskrá þig, þarftu að hafa eftirfarandi í huga.

  1. Vefstjórn samþykkir notendur og þú færð ekki póst með staðfestingu.
  2. Ef þú skráir @hotmail netfang, þá er þér eytt út.
  3. Netföng eru athuguð af vefstjórnendum, hvort þau séu virk, séu þau það ekki, er umsókn eytt.

Vefstjórnendur Blæta & Bindinga
Skuggi þann 02/10/2007 : 17:19:32
printer friendly email to someone

  Ítrekun: @hotmail.com verður ekki leyft!

Vegna þess að fjöldinn allur af fólki er að reyna að skrá sig með @hotmail.com netfangi, skal það ítrekað í 100 sinn að þeir sem skrá sig með @hotmail.com verður eytt jafnóðum út.

Við viljum líka minna á að fólk fær ekki sendan staðfestingarpóst fyrir skráningu, heldur eru það vefstjórnendur sem samþykkja notendur og getur samþykkið tekið 5 mínútur upp í 12 klukkutíma, allt eftir álagi.

Það er orðið pínulítið þreytandi fyrir vefstjórnendur hér að þurfa að eyða út um 10 manns á sólarhring sem að ekki lesa reglurnar og þess vegna ætlum að við líma þessa frétt á svo að þið getið skilið þetta.

@hotmail.com
er ekki leyft hér sem tölvupóstfang fyrir notendur.
Eina undantekningin er ef að þú, væntanlegur notandi ert með MSN, þá máttu skrá það sem þitt MSN tengifang.

En annars verður bara eytt umsóknum og prófílum.

Þetta er endanlegt af okkar hálfu.
------------
Einnig bendum við fólki á að þeir sem verða uppvísir að nota erlenda proxy þjóna sem valda álagi verða bannaðir án viðvörunnar án undantekninga.
------------

Vefstjórn B&B.
Skuggi þann 02/06/2006 : 05:35:13
printer friendly email to someone

  Námskeið í erótískum flengingum fyrir karlmenn fimmtudaginn. 28. janúar


Námskeið í erótískum flengingum og hýðingum fyrir karlmenn

Fimmtudaginn 28. janúar kl. 19:30 verður kvöldnámskeið í erótískum flengingum og hýðingum.

Þetta námskeið er eingöngu fyrir karlmenn (óháð kynhneigð), en fljótlega verður haldið samskonar námskeið fyrir bæði kyn og verður það auglýst síðar.

    * Farið verður yfir öryggi, tilfinningar og líkamleg atriði,
    * Aðferðir og leiktæki kynnt
    * Sýnikennsla á fyrirsætu
    * Spurningar og umræður á eftir

Námskeiðið er hugsað fyrir bæði drottnara og (ekki síst) undirgefna, sem og alla áhugsama.
Leiðbeinandi er sadomaso

Námskeiðið er frítt fyrir þá félagsmenn í BDSM á Íslandi og MSC sem hafa greitt félagsgjald á árinu 2009, en aðrir þurfa að greiða kr. 1.000 við innganginn. 

Til að skrá sig á námskeiðið og fá nánari upplýsingar þarf að senda tölvupóst á BDSM á Íslandi:
bdsm@bdsm.is, eða hafa samband við MSC: msc@msc.is , sími 893 9552

BDSM á Íslandi í samvinnu við MSC

Geir fesseln þann 28/03/2010 : 15:17:06
printer friendly email to someone

  Kaffihúsakvöld BDSM á Íslandi fimmtud. 7. jan.

Kaffihúsakvöld


BDSM á Íslandi mun halda sitt reglulega kaffihúsakvöld (munch)fimmtudaginn 7. janúar næstkomandi. Í leiðinni viljum við einnig minna á að þriðjudaginn 19. jan. verður einnig kaffihúsakvöld og þá höldum við upp á 12 ára afmæli félagins.

Þessi fyrsti hittingur ársins hefst kl 20 og stendur til um kl 22.
Allir eru hjartanlega velkomnir.

Við verðum á veitingastaðnum Tabasco's við Ingólfstorg
(
http://www.tabascos.is/ ), þar sem er fjölbreyttur matseðill fyrir
lítinn pening. Við verðum á efri hæðinni og hægt er að spyrja um
S-hópinn.

Allt sem sagt er á fundinum er trúnaðarmál þeirra sem saman eru
komnir. Full nafnleynd ef þú kýst svo, og þá getur þú notað gælunafn,
eða nikk. Hversdags klæðnaður gildir.

Umræðuefni kvöldsins verður starfið á nýju ári og væntanleg námskeið 14. jan og síðar.

Endilega fjölmennum á Tabasco's, borðum saman og eigum góða kvöldstund saman.


Kær kveðja
Stjórn BDSM á Íslandi
 
Geir fesseln þann 16/03/2010 : 18:46:00
printer friendly email to someone

Go to page       >>  
 

Væntanlegt

No events
Render time: 0.5443 second(s); 0.1299 of that for queries. DB queries: 22. Memory Usage: 363,816b